Frelsið er yndislegt 7. mars #12 Óviðunandi staða kvenna í fullnustukerfinu Í tilefni af alþjólegum baráttudegi kvenna er í þessum þætti af Frelsið er yndislegt fjallað um (óviðunandi) stöðu kvenna í fullnustukerfinu/ fangelsum. Gestir þáttarins eru Guðbjörg Sveinsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur og faglegur ráðgjafi Afstöðu ásamt Tinnu Hilmarsdóttur Konudóttur og Þóru Björgu Sirrýjardóttur sem eru í Vettvangsteymi Afstöðu. Stjórnendur þáttarins eru: Íris Ósk Ólafsdóttir og Guðmundur Ingi Þóroddsson. Hægt að ná sambandi við Afstöðu í síma 556-1900 og netfangið afstada@afstada.is. Lögfræðiaðstoð Afstöðu er í síma 666-1211.