Miðvikudagur 18. febrúar Græna borðið: Laxeldi í sjókvíum Í öðrum þætti af Græna borðinu setjast menn niður og skiptast á skoðunum um væntanlegt frumvarp um lagareldi. Páll Ásgeir Ásgeirsson stjórnaði þættinum en við borðið sátu: Jón Kaldal sem hefur látið til sín taka í umræðu um laxeldi undanfarin misseri. Þar sat einnig Arnar Pálsson erfðafræðingur sem er sérfróður um margt sem lýtur að laxfiskum. Síðast en ekki síst situr þar Gylfi Ólafsson formaður bæjarráðs í Ísafjarðarbæ. Hann hefur tekið upp hanskann fyrir þessa fyrirhuguðu lagasetningu og heldur því áfram í þættinum.