Miðvikudagur 21. október Græna borðið 25. þáttur - Gagnaver Pólitíska forystu og reglur um starfsemi og vöxt orkugleypandi gagnavera skortir á Íslandi. Eftirlit með greininni og lög um hana vantar og gagnaver þurfa ekki einu sinni að fara í umhverfismat, þótt eitt slíkt geti haft víðtækari áhrif á náttúruna og samfélagið en heil stórvirkjun. Andstaða við þau er stórpólitísk í mörgum löndum. Geir Guðmundsson, orkuverkfræðingur, Björn Leví Gunnarsson, tölvunarfræðingur og Gauti Kristmannsson prófessor, ræða gagnaverabúskapinn. Kristín Helga Gunnarsdóttir og Björg Eva Erlendsdóttir stýra umræðum.