Miðvikudagur 28. október Græna borðið 26. þáttur - Stökkbreytingar í stofnunum Heilbrigðisfulltrúum sem sagt var upp hjá sveitarfélögum verður boðinn ráðningarsamningur hjá Umhverfis og orkustofnun í vikunni. Starf Náttúruverndarstofnunar breiðist yfir landið þegar utanvegaakstur, allsstaðar, en ekki bara í friðlöndum, verður undir eftirliti hennar. Gestur Pétursson og Sigrún Ágústsdóttir, forstjórar eru gestir Græna borðsins, ásamt Andrési Skúlasyni, hjá Landvernd sem leiðbeinir almenningi oft um völdunarhús stofnanaumhverfisins. Björg Eva Erlendsdóttir stjórnar þættinum, sem líka er um einföldun leyfa til að flýta framkvæmdum.