Samstöðin

Græna borðið 4. þáttur - Ísland er ekki orkueyja

Episode Summary

Miðvikudagur 4. mars Græna borðið 4. þáttur - Ísland er ekki Orkueyja Græna borðið: Ísland er ekki orkueyja, eins og stjórnvöld og Landsvirkjun halda fram, segir fyrsti umhverfisráðherra lýðveldisins Júlíus Sólnes. Hann segir löngu tímabært að loka álverinu í Straumsvík sem sé komið inn í miðja byggð og barn síns tíma. Júlíus vill efla menntakerfi í þágu atvinnulífs, í stað þess að byggja á gamaldags orku- og stóriðjustefnu. Júlíus lýsir líka lýðræðislegu mikilvægi þess að orkumál og umhverfisvernd séu í aðskildum ráðuneytum. Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingar, tekur undir þau orð og segir til greina koma að snúa til baka í aðskilin ráðuneyti. Sigmundur telur alltof hart gengið að náttúrunni með fyrirliggjandi orkuáformum, ekki síst í vindorku. Hann lýsir því jafnframt að þrýstingur á stjórnvöld frá stórfyrirtækjum hafi aldrei verið meiri en nú. Andrés Skúlason verkefnastjóri hjá Landvernd fer yfir vindorkuáformin en 43 orkuver eru á teikniborðinu hringinn í kringum landið. Þau eru að mestu í eigu þriggja til fjögurra erlendra fyrirtækja. Kristín Helga Gunnarsdóttir og Björg Eva Erlendsdóttir, stjórna umræðum Græna borðins í dag.