Mánudagur 26. október Manngildi - 2. þáttur: Sögur sem breyta sýn okkar Í þessum þætti Manngildis er gesturinn Magnús Orri Arnarson, kvikmyndagerðarmaður sem hefur meðal annars komið að gerð þáttanna Með okkar augum og 50 ára afmælisþáttar Þroskahjálpar. Magnús vinnur nú að heimildarmynd um íslensku þátttakendur á Special Olympics 2027, undirbúning þeirra, upplifun og fólkið á bak við afrekin. Við ræðum hvernig kvikmyndagerð getur aukið sýnileika fatlaðs fólks, brotið niður staðalímyndir og gefið röddum og sögum sem ekki fá alltaf næga athygli meira rými í samfélaginu.