Samstöðin

Rauða borðið 28. maí: Oscar, hamingja barna, Gaza, Rússland, blaðamennska og gervigreind

Episode Summary

Miðvikudagur 28. maí Oscar, hamingja barna, Gaza, Rússland, blaðamennska og gervigreind Haraldur Þorleifsson frumkvöðull og tónlistarmaður, Arna Grét­ars­dótt­ir, sókn­ar­prest­ur í Reyni­valla­prestakalli, Bjarni Karlsson, prestur og guðfræðingur hjá sálgæslu- og sálfræðistofunni Haf, ræða við Gunnar Smára um mál Oscars And­ers Florez Bocanegra, 17 ára drengs frá Kólumbíu. Og um hlutverk borgara þegar stjórnvöld brjóta gegn siðferðiskennd þeirra. Inger Erla Thomsen, sérfræðingur í málsvarastarfi UNICEF á Íslandi og Eva Bjarnadóttir, teymisstjóri innanlandsdeildar UNICEF ræða lífshamingju barna við Maríu Lilju. Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur ræðir við Gunnar Smára um stuðning stjórnvalda í Evrópu við þjóðarmorðið í Gaza og hvort von sé til þess að almenningi takist að breyta þeirri afstöðu. Natasha S. ljóðskáld ræðir um Rússland við Gunnar Smára, vanda þess að vera Rússi á Íslandi og hvernig það er að koma til móðurlandsins í skugga innrásar Pútins í Úkraínu. Blaðamannafélagið kynnti á félagsfundi í gærkvöld nýjar lausnir er varða framtíð fjölmiðla og blaðamennsku. Meðal hugmynda er að tekjur af auglýsingasölu Rúv renni til einkarekinna miðla. Ritstjórnarfulltrúar Samstöðvarinnar, þeir Gunnar Smári Egilsson og Björn Þorláks, ræða hvort lausnirnar séu raunhæfar. Björgmundur Örn Guðmundsson, ráðgjafi í nýsköpun ræðir femínskan vinkil á innleiðingu gervigreindar á vinnumarkaði við Maríu Lilju.