Samstöðin

Sunnudagurinn 1. nóvember Synir Egils: Uppsagnir, atvinnuleysi, stöðnun, umrót og pólitísk straumhvörf

Episode Summary

Sunnudagurinn 1. nóvember Synir Egils: Uppsagnir, atvinnuleysi, stöðnun, umrót og pólitísk straumhvörf Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingkona Miðflokksins, María Rut Kristinsdóttir þingkona Viðreisnar og Guðmundur Ari Sigurjónsson þingmaður Samfylkingar og ræða helstu fréttir og stöðu mála, stöðu flokka, ríkisstjórnar og sveitarstjórna. Þá koma þau Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður Vg, Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar og Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður og fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins og ræða pólitíska strauma vestan hafs og austan og áhrif þeirra á íslensk stjórnmál. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.