Samstöðin

Sunnudagurinn 27. september Synir Egils: Stöðnun, verðbólga, atvinnuleysi, olía, stríð og auðlindir

Episode Summary

Sunnudagurinn 27. september Synir Egils: Stöðnun, verðbólga, atvinnuleysi, olía, stríð og auðlindir Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Þóra Arnórsdóttir forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun, Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur og Halla Gunnarsdóttir formaður VR og ræða kólnandi hagkerfi, aukið atvinnuleysi og viðvarandi verðbólgu og mögulegar aðgerðir og nauðsynlegar. Síðan koma Halla Hrund Logadóttir þingkona, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fyrrum þingkona og framkvæmdastjóri Courage International og Pétur Marteinsson borgarfulltrúi og halda áfram að greina samfélagið og ytri aðstæður; olíukreppu, stríðsátök, Grænland en líka auðlindir og mannréttindi. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári yfir pólitíkina með sínu nefi.